• Hámarksmagn matar sem hægt er að
frysta á 24 klst. er sýnt á tegundarspjald-
inu.
• Frystingarferlið tekur 24 tíma. Ekki skal
bæta neinum ófrosnum mat í frystinn á
því tímabili.
• Aðeins skal frysta fersk og vel hreinsuð
gæðamatvæli.
• Frystið mat í litlum skömmtum til að hann
geti frosið hratt og alveg í gegn og til
þess að seinna sé hægt að afþíða aðeins
það magn sem þarf.
• Pakkið matnum inn í álpappír eða plast
og gætið þess að pakkarnir séu loftþéttir.
• Ekki láta ferskan, ófrosinn mat snerta mat
sem er þegar frosinn, til að forðast hækk-
un hitastigs þess síðarnefnda.
• Magur matur geymist betur og lengur en
feitur; salt minnkar geymsluþol matar.
• Vatn frýs og ef þess er neytt strax eftir að
það er tekið úr frystinum kann það að
valda frostbruna á húð.
• Ráðlegt er að sýna frystidagsetninguna á
hverjum pakka sem settur er í frystinn til
að hægt sé að fylgjast með geymslutím-
anum.
Ráð varðandi geymslu frystra matvæla
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem best,
skal:
• Gæta þess að frystivara úr búð hafi verið
geymd á fullnægjandi hátt í búðinni.
• Tryggja að frystivara sé flutt úr búðinni
og í frystinn á sem skemmstum tíma.
• Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær opnar
lengur en brýn nauðsyn krefur.
• Eftir afþiðnun skemmist matur fljótt og
ekki er hægt að frysta hann aftur.
• Ekki geyma matvöru lengur en framleið-
andi vörunnar mælir með.
Meðferð og þrif
Varúđ Ef stunda á viðhald á
heimilistækinu þarf að taka það úr
sambandi við rafmagn áður.
Í kælieiningu þessa heimilistækis eru vetnis-
kolefni; því mega aðeins löggildir tækni-
menn framkvæma viðhald og endurhleðslu
á því.
Ađvörun Aukahluti og íhluti
heimilistækisins er ekki hægt að þvo í
uppþvottavél.
Regluleg þrif
Þrífa þarf búnaðinn reglulega:
• hreinsið innra rýmið og fylgihlutina með
volgu vatni og mildri sápu.
• skoðið reglulega dyraþéttingarnar og
strjúkið af þeim óhreinindi svo að þær séu
hreinar og lausar við smáagnir.
• skolið og þurrkið vandlega.
Mikilvægt! Ekki toga í, færa til eða skemma
neinar pípur og/eða kapla inni í skápnum.
Aldrei nota uppþvottalög, slípiuft, hreins-
iefni með sterkum ilmefnum eða vaxbón til
að hreinsa innra byrðið þar sem það
skemmir yfirborðið og skilur eftir sterka lykt.
Hreinsið þéttinn (svört rist) og þjöppuna af-
tan á heimilistækinu með bursta. Það bætir
afköst heimilistækins og sparar rafmagn.
Mikilvægt! Gætið þess að skemma ekki
kælikerfið.
Mörg efni sem framleidd eru til að hreinsa
vinnufleti í eldhúsum innihalda efni sem
geta skemmt plastið sem notað er í þessu
heimilistæki. Þess vegna er mælt með því að
ytra byrði þessa heimilistækis sé þrifið ein-
göngu með volgu vatni með örlitlum upp-
þvottalegi í.
Að þrifum loknum skal stinga búnaðinum af-
tur í samband við rafmagn.
ÍSLENSKA 63
Komentáře k této Příručce