
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 38
Öryggisleiðbeiningar 39
Vörulýsing 42
Dagleg notkun 44
Góð ráð 46
Umhirða og þrif 47
Bilanaleit 48
Uppsetning 49
Tæknilegar upplýsingar 51
IKEA-ÁBYRGÐ 51
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins, skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með tækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
• Þetta tæki mega börn nota frá 8 ára aldri og einnig aðilar
með skerta líkamlega hæfni, skynjun eða geðslag eða sem
skortir reynslu eða þekkingu ef viðkomandi hafa fengið
kennslu eða leiðbeiningar um hvernig nota skal tækið á
öruggan hátt og skilja þær hættur sem fylgja notkun þess.
• Börn mega ekki leika sér með tækið.
• Öllum pakkningum skal halda fjarri börnum.
• Halda skal börnum og gæludýrum fjarri tækinu þegar það er
í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar tækisins
eru heitir.
• Heimilistækið er með barnalæsingu, við mælum með notkun
hennar.
• Börn mega ekki hreinsa eða framkvæma viðhald á tækinu án
þess að vera undir eftirliti.
• Halda skal börnum undir 3 ára aldri frá tækinu nema þau séu
undir ströngu eftirliti.
ÍSLENSKA
38
Komentáře k této Příručce