
• Heimilistækið þarf að vera í vissri
lágmarksfjarlægð frá öðrum
heimilistækjum og skápum eða öðrum
einingum, í samræmi við
samsetningarleiðbeiningarnar.
• Ef enginn ofn er fyrir neðan
eldunarhelluna skal koma fyrir skilrúmi
minnst 20 mm frá botni eldunarhellunnar.
• Verndaðu skurðfleti vinnuborðsins gegn
raka með þar til gerðu þéttiefni sem
fylgir með vörunni í fylgihlutapoka.
Þéttiefnið lokar alveg bilinu á milli
heimilistækisins og vinnuborðsins.
• Ekki nota sílíkonþéttiefni á milli
heimilistækisins og vinnuborðsins.
Forðastu að setja heimilistækið upp við
dyr og undir gluggum, þar sem heit
eldunarílát gætu ýst út af hellunum við
það að dyr og gluggar eru opnaðir.
• Aðeins vottuðum þjónustuaðila er heimilt
að setja tækið upp, tengja það eða gera
við það. Notaðu eingöngu upprunalega
varahluti.
Tenging við rafmagn
• Áður en þú tengir skaltu athuga að
málspenna heimilistækisins sem sýnd er á
merkiplötunni sé sú sama og
afhendingarspennan frá rafveitunni.
Einnig skaltu athuga aflmælingu
heimilistækisins og ganga úr skugga um
að vírinn sé af réttri stærð fyrir afköst
heimilistækisins (sjá kaflann „Tæknilegar
upplýsingar“). Merkiplatan er staðsett
neðarlega á ytra byrði eldunarhellunnar.
• Heimilistækið er búið tengisnúru. Á henni
þarf að vera rétt gerð af kló sem þolir
álagið sem gefið er upp er á
auðkennisplötunni. Til að tengja klóna
við snúruna skaltu fylgja ráðleggingunum
sem sýndar eru á eftirfarandi mynd.
Endurnýjun tengisnúru
• Til að endurnýja tengisnúru þarf
sérstakan búnað sem aðeins tæknimenn
eiga. Aðeins má nota upprunalega
varahluti frá varahlutaþjónustu. Klóna
þarf að setja í viðeigandi innstungu. Ef
heimilistækið er tengt beint við rafkerfið
þarf að koma fyrir tveggja skauta rofa á
milli heimilistækisins og innstungunnar,
með minnst 3 mm bil á milli
rofasnertanna, og af gerð sem hentar
fyrir álagið sem búnaðurinn þarf að
þola, í samræmi við gildandi reglur.
• Tengisnúrunni þarf að koma þannig fyrir
að enginn hluti hennar geti náð hitastigi
sem er 70°C hærra en
herbergishitastigið. Brúni (eða svarti)
fasaleiðarinn (festur í snertu í
tengiklemmuröðinni sem er merkt með
"L") þarf alltaf að vera tengdur við
netfasann.
AÐVÖRUN! Þegar heimilistækið
er komið í samband við rafmagn
skaltu ganga úr skugga um að
allar eldunarhellurnar virki með
því að stilla hverja hellu á
hámarkshita í augnablik.
ÍSLENSKA 50
Komentáře k této Příručce