
Viðbótarstillingar
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á
kæliviftunni til að halda flötum tækisins
svölum. Ef þú slekkur á heimilistækinu
stöðvast kæliviftan.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum
getur orsakað hættulega ofhitnun. Til að
koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
Góð ráð
Almennar upplýsingar
• Þegar þú forhitar skaltu fjarlægja
vírhillurnar og bakkana úr ofnhólfinu til
að fá sem hröðust afköst.
• Heimilistækið hefur fjórar hillustöður.
Teldu hillustöðurnar að neðan frá botni
tækisins.
• Raki getur þéttst í heimilistækinu eða á
glerplötum hurðarinnar. Þetta er eðlilegt.
Haltu þig alltaf frá heimilistækinu þegar
þú opnar hurð þess á meðan þú ert að
elda. Ef þú tekur eftir raka inni í ofninum
skaltu halda hurðinni opinni í nokkrar
mínútur.
• Hreinsaðu rakann eftir hverja notkun
heimilistækisins.
• Ekki setja hlutina beint á botn
heimilistækisins og ekki hylja einingarnar
með álpappír þegar þú eldar. Það getur
breytt árangrinum af bakstrinum og
skemmt glerungshúðina.
Kökur bakaðar
• Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4
baksturstímans eru liðnir
Eldun á kjöti og fiski
• Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan
mat til að koma í veg fyrir að blettir sem
geta verið varanlegir komi í ofninn.
• Láttu kjötið standa í um það bil 15
mínútur áður en þú skerð það svo að
vökvinn seytli ekki út.
• Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum á meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
ÍSLENSKA 11
Komentáře k této Příručce